Tímalína Gulleggsins

Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin hefur verið af KLAK – Icelandic Startups árlega síðan 2008, samtals 18 sinnum. 

Keppt er um 2.000.000kr verðlaunafé fyrir fyrsta sætið!

Dagskrá Gulleggsins telur meðal annars: 

  • Hugmyndahraðhlaup fyrir háskólanema í janúar 

  • Masterclass, opin fyrir öll 

  • 10 teymi eru valin í Lokakeppni Gulleggsins 

Gulleggið hefur verið stökkpallur fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki eins og Controlant, Meniga, PayAnalytics, Genki, Taktikal 

Þátttaka í keppninni er öllum að kostnaðarlausu, og ekki er nauðsynlegt að vera með hugmynd við skráningu. 

Næstu Viðburðir

En hvernig lítur þetta allt saman út? Hér sjáum við leiðina að Gullegginu 2027

30-31. janúar – Masterclass Gulleggsins

Masterclass Gulleggsins

Masterclass Gulleggsins er ókeypis námskeið í nýsköpun og stofnun fyrirtækja – opið fyrir öll að kostnaðarlausu. 

Hvort sem þú ert með hugmynd eða ekki, þá er Masterclass Gulleggsins fyrir öll þau sem hafa áhuga á nýsköpun eða að stofna fyrirtæki. 

Reynsluboltar og neglur úr atvinnulífinu hjálpa þér að skilgreina hugmyndina þína og finna hvernig má skapa viðskiptatækifæri úr henni. 

Markmiðið með Masterclass er að aðstoða þig við að útbúa 10 glæru kynningu og einnar mínútna myndband um hugmyndina þína, sem er akkúrat það sem þarf til að skila inn umsókn í Lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í febrúar.

 

26. febrúar – Lokakeppni Gulleggsins 2026

Masterclass Gulleggsins

Lokakeppni Gulleggsins 2026 – Stóra stundin er runnin upp! 🚀

Framúrskarandi frumkvöðlar og nýjar hugmyndir munu líta dagsins ljós í Lokakeppni Gulleggsins 2026!
Steiney Skúladóttir leiðir okkur í gegnum viðburðinn þar sem 10 frábær teymi kynna sínar nýsköpunarhugmyndir

Eftir keppni: Léttar veitingar, drykkir og skemmtileg samvera við gróðurvegginn

Bein útsending á visir.is

Bakhjarlar

GULL

SILFUR

BRONS

Myndir frá fyrri viðburðum

24. Október – Opnað fyrir skráningu
Opnað fyrir skráningu í Gulleggið 2026 þann 24. október.
 
Öll sem sitja á hugmynd (eða vilja taka þátt án hugmyndar!) eru hvött til að skrá sig. 
24. október – Vísindaferð 


KLAK hvetur háskólanema sérstaklega til að taka þátt í Gullegginu.  

Vísindaferð opin öllum háskólanemum. Drykkir í boði CCP. 

Gulleggið er fyrir öll og ömmu þeirra!

Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni íslands, kynnt fyrir landsmönnum: 

  • Reykjavík, Gróska 20. nóvember
  • Akureyri, Strikið 25. nóvember