Masterclass Gulleggsins er ókeypis námskeið í nýsköpun og stofnun fyrirtækja – opið fyrir öll að kostnaðarlausu.
Hvort sem þú ert með hugmynd eða ekki, þá er Masterclass Gulleggsins fyrir öll þau sem hafa áhuga á nýsköpun eða að stofna fyrirtæki.
Reynsluboltar og neglur úr atvinnulífinu hjálpa þér að skilgreina hugmyndina þína og finna hvernig má skapa viðskiptatækifæri úr henni.
Markmiðið með Masterclass er að aðstoða þig við að útbúa 10 glæru kynningu og einnar mínútna myndband um hugmyndina þína, sem er akkúrat það sem þarf til að skila inn umsókn í Lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í febrúar.
Lokakeppni Gulleggsins 2026 – Stóra stundin er runnin upp! 🚀
Framúrskarandi frumkvöðlar og nýjar hugmyndir munu líta dagsins ljós í Lokakeppni Gulleggsins 2026! Steiney Skúladóttir leiðir okkur í gegnum viðburðinn þar sem 10 frábær teymi kynna sínar nýsköpunarhugmyndir
Eftir keppni: Léttar veitingar, drykkir og skemmtileg samvera við gróðurvegginn