Opið fyrir skráningar í Gulleggið 2026 – stærstu frumkvöðlakeppni landsins
Gulleggið, stærsta og elsta frumkvöðlakeppni Íslands á hugmyndastigi, snýr aftur í upphafi árs 2026. Keppnin hefur verið haldin árlega af KLAK – Icelandic Startups síðan 2008 og verður haldin í 19. sinn á næsta ári. Nú hefur verið opnað fyrir skráningar í keppnina.
Gulleggið er opið öllum, óháð því hvort þátttakendur séu með fullmótaða hugmynd eða ekki. Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu og er keppnin sérstaklega ætluð þeim sem hafa áhuga á nýsköpun, frumkvöðlastarfi og stofnun fyrirtækja.
Keppt er um 2.000.000 króna verðlaunafé fyrir fyrsta sætið í boði Landsbankans sem hefur styrkt keppnina frá upphafi. Auk þess sem þátttakendur fá aðgang að víðtækri leiðsögn, fræðslu og tengslaneti reynslumikilla frumkvöðla, fjárfesta og sérfræðinga.
Fjölbreytt dagskrá í janúar og febrúar
Dagskrá Gulleggsins 2026 hefst í janúar með Hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins & Landsbankans, sem er ætlað háskólanemum. Þar vinna þátttakendur að lausnum á raunverulegum áskorunum sem kynntar eru af bakhjörlum keppninnar: ELKO, KPMG, JBT Marel, Háskólanum í Reykjavík og Reykjavíkurborg. Sigurvegarar hraðhlaupsins hljóta 150.000 króna verðlaun og tryggt sæti í Topp 10 hópi lokakeppninnar.
Í framhaldinu fer fram Masterclass Gulleggsins, opið og ókeypis námskeið þar sem þátttakendur fá aðstoð við að móta hugmyndir sínar, greina viðskiptatækifæri og útbúa kynningu sem uppfyllir skilyrði lokakeppninnar.
Lokakeppni Gulleggsins fer fram 26. febrúar 2026 í Grósku, þar sem tíu teymi kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd og áhorfendum. Keppnin verður einnig sýnd í beinni útsendingu á visir.is.
Gulleggið hefur í gegnum árin reynst öflugur stökkpallur fyrir íslensk sprotafyrirtæki á borð við Controlant, Meniga, PayAnalytics og Taktikal. Keppnin er ætluð hugmyndum á frumstigi og er gert ráð fyrir að keppendur hafi hvorki tekið inn meira en 2 milljónir króna í fjármögnun né hafið tekjuöflun.
Að framkvæmd keppninnar koma árlega um 100 einstaklingar, þar á meðal sjálfboðaliðar, mentorar og sérfræðingar úr atvinnulífinu. Verkefnastjórn Gulleggsins er að stórum hluta skipuð nemendum frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík undir leiðsögn KLAK – Icelandic Startups.
Skráning opin
Skráning í Gulleggið 2026 er opin og rennur út á miðnætti 29. janúar 2026. Öll áhugasöm eru hvött til að skrá sig, hvort sem þau sitja á hugmynd eða vilja taka þátt án hennar.