Héðinn er styrktaraðili Gulleggsins 2024

Héðinn er nýr styrktaraðili Gulleggsins, stærstu frumkvöðlakeppni Íslands. Daníel Freyr Hjartarson, yfirmaður nýsköpunar og þróunar Héðins og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups undirrituðu samstarfssamning sín á milli á dögunum.

Við undirritun samningsins var haft eftir Daníel Frey: “Gulleggið er ein af mikilvægustu hugmyndasamkeppnum Íslands og við erum einkar stolt af því að fá að styðja við bakið á þessu flotta verkefni. Héðinn er meira en 100 ára gamalt fyrirtæki og því þekkjum við mikilvægi þess að geta þróast með tímunum og aðlagað okkur að nýjustu tækni og vísindum. Þetta er frábært tækifæri til að halda áfram að styðja við íslenska nýsköpun og við hlökkum til að miðla reynslu okkar og þekkingu til frumkvöðla um land allt”. 

Árlega eru sendar inn hundruð viðskiptahugmynda inn í keppnina og hefur hvatinn til þess komið úr öllum áttum í samfélaginu en sérstaklega bakhjörlum sem hafa stutt við sprotasamfélagið á einn eða annan hátt í gegnum tíðina. Öll geta orðið frumkvöðlar en þátttaka í Gullegginu hefur verið ein vinsælasta leiðin inn í sprotaumhverfið þar sem fyrstu skrefin eru tekin. Stuðningur við verðandi frumkvöðla er mikilvægur og hafa bakhjarlar Gulleggsins síðustu 16 ár tekið öllum frumkvöðlum opnum örmum og stutt við þau sem vilja koma hugmyndum sínum á framfæri. 

Við erum mjög ánægð með að gamalgróið fyrirtæki eins og Héðinn, sem byggir á langri reynslu og djúpri þekkingu á málmiðnaði og ýmiss konar tækni, sé tilbúið til að styðja við ferskustu sprotahugmyndir Íslands. Samstarfið mun án efa veita mörgum frumkvöðlum mikinn innblástur.,” segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups. 

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Affineva bar sigur úr býtum í Gullegginu 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum

Lokakeppni Gulleggsins 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar, klukkan 15:30 – 18:00. Þá stíga tíu metnaðarfull teymi á svið og kynna

Vegleg verðlaun Gulleggsins

Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með

Upptökur frá Masterclass

Það má ekki gleyma að njóta Masterclassins þó að þið séuð sennilega öll að klára umsóknir fyrir lokakeppnina Mikið sem þetta var gaman. Hér getið

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta