Lokakeppni Gulleggsins 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar, klukkan 15:30 – 18:00. Þá stíga tíu metnaðarfull teymi á svið og kynna nýsköpunarhugmyndir sem eiga það sameiginlegt að leita lausna á áskorunum framtíðarinnar, allt frá líftækni og stafrænum lausnum til skemmtunar, umhverfis- og matvælalausna.

Viðburðinn leiðir Steiney Skúladóttir og má búast við bæði fróðlegri og skemmtilegri dagskrá þar sem hugmyndirnar fá að njóta sín á stóra sviðinu. Í lok keppni verður boðið upp á léttar veitingar og drykki, og gefst gestum tækifæri til að spjalla við teymin, dómnefnd og aðra gesti við gróðurvegginn í Grósku.

Lokakeppnin er opin öllum sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, hvort sem þú ert sjálf(ur) með hugmynd í maganum, starfar í atvinnulífinu eða vilt einfaldlega fylgjast með næstu hugmyndum Íslands fæðast. Við hvetjum þig eindregið til að mæta, taka þátt í stemningunni og styðja við íslenskt frumkvöðlastarf.

Fyrir þá sem komast ekki á staðinn verður keppnin einnig í beinni útsendingu á Vísir.is.

Hér má sjá nánari umfjöllun um þau tíu teymi sem keppa um Gulleggið 2026: Ljóst er hvaða 10 teymi keppast um Gulleggið 2026!

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Affineva bar sigur úr býtum í Gullegginu 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum

Vegleg verðlaun Gulleggsins

Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með

Upptökur frá Masterclass

Það má ekki gleyma að njóta Masterclassins þó að þið séuð sennilega öll að klára umsóknir fyrir lokakeppnina Mikið sem þetta var gaman. Hér getið

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta

Tengslamyndunarviðburður Gulleggsins

Ert þú skráð/ur í Gulleggið án hugmyndar?Eða ertu kannski með frábæra hugmynd en vantar teymisfélaga? Þá er þetta fullkominn vettvangur fyrir þig! Hér koma þátttakendur