Gulleggið, stærsta og elsta frumkvöðlakeppni Íslands, á vegum Icelandic Startups er nú á lokametrunum. Rýnihópur hefur valið 10 efstu teymin sem halda nú áfram keppni sem fram fer 4. febrúar.
Í ár bárust 155 hugmyndir þar af yfir áttatíu kynningar sem voru sendar inn í lokakeppnina sem vildu freista þess að komast í Topp 10 en það eru mun fleiri kynningar en oft áður.
Rýnhópur fagaðila Gulleggsins fór vandlega yfir kynningar hvers teymis sem stóðust kröfur Gulleggsins og gáfu þeim einkunn og að lokum stóðu tíu stigahæstu teymin eftir.
Icelandic Startups óskar öllum Topp 10 teymum til hamingju með að hafa komist áfram til þess að keppa í Gullegginu 2022.
Topp 10 Gulleggsins 2022 eru Ecosophy, Miako, SEIFER, TVÍK, Vetur Production, Lilja app, Guru, Samtaka heimili, Gamechanger, Stöff.
Ecosophy
„Við hjálpum fólki að taka góðar ákvarðanir um viðbrögð við loftslagsbreytingum.„
Miako
„Miako – Markaðstorg sem stuðlar að bættu hringrásarhagkerfi ásamt því að hvetja almenning og fyrirtæki til að láta gott af sér leiða.„
SEIFER
„SEIFER vinnur að því að hanna og þróa íþróttabúnað, ásamt gagnagrunni, sem sem er nýttur í rauntíma mælingar og gagnsöfnun varðandi höfuðhögg. Með gagnasöfnun búnaðarins er hægt að endurbæta bataferli og viðbragðsáætlanir gegn heilahristingum í íþróttum.„
TVÍK
„TVÍK, eða tæknivæddi íslenskukennarinn, er gagnvirkur kennsluvettvangur sem styðst við nýjustu máltækniaðferðir til að hjálpa þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í að læra íslensku.„
Vetur Production
„Vetur Production er íslenskt animation fyrirtæki sem framleiðir teiknimyndir upp úr þjóðsögum okkar og ævintýrum. Áhersla er lögð á fjölbreytileika og að varðveita íslenskan menningararf.“
Lilja app
„Lilja app bjargraður þolenda til bættrar lagalegrar og félagslegrar stöðu.“
Guru
„Hugbúnaður og markaðstorg sem gerir hverjum sem er kleift að setja saman skipulagðar ferðir og gerast leiðsögumaður.„
Samtaka heimili
„Samtaka heimili er smáforrit (app) hannað fyrir foreldra þeirra barna sem eiga tvö heimili. Markmiðið er að hanna tæki sem auðveldar daglegt skipulag foreldrasamvinnu, lágmarkar þætti sem stuðla að neikvæðum samskiptum og dregur úr álaginu sem fylgir þriðju vaktinni fyrir samsettar fjölskyldur.„
Gamechanger
„Hugbúnaðarlausn sem hjálpar einstaklingum að bæta sig í mismunandi íþróttum í eigin frítíma. Lausnin býr til sérsniðnar leiðir sem gerir einstaklingum kleift að ná sem mestum framförum.„
Stöff
„Stöff er rafrænt deilihagkerfi sem bíður notendum að leigja eða lána út stöff í sinni eigu til annarra notenda á öruggan hátt og þar með draga úr sóun og styrkja hringrásarhagkerfið.„
Nú tekur við stíft prógramm og mikil vinna sem teymin þurfið að vera tilbúin að leggja á sig fram að keppninni 4. febrúar. Prógrammið hefst um helgina, laugardaginn 29. janúar og sunnudaginn 30. janúar í Grósku.
Teymin tíu munu nota alla helgina til þess að geta pitchað hugmynd sinni á aðeins 3 mínútum. Lögð verður áhersla á hvernig þau fara að því að hefja rekstur og hvaða þættir það eru sem þarf að horfa til þegar koma á hugmynd í framkvæmd á árangursríkan hátt.
Við hjá Icelandic Startups erum ótrúlega spennt að fá að fylgja Topp 10 teymin næstu viku fram að keppni og sjá öll og hugmyndir þeirra vaxa. Hér er hægt að sjá sigurvegara síðustu ára.
Gerð er sú krafa að öll teymin taki fullan þátt í öllu prógramminu og séu reiðubúin að leggja sig fram við að vaxa, þroskast og undirbúa sig vel fyrir lokakeppnina 4. febrúar.