Fyrstu verðlaun í Gullegginu hækka í 2.000.000 kr.

Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni landsins, hefur verið haldin af KLAK-Icelandic Startups frá árinu 2008 og frá upphafi hefur Landsbankinn verið aðalbakhjarl keppninnar. Nú hefur Landsbankinn ákveðið að bæta enn frekar í og tvöfalda verðlaunafé.

Þrjú stigahæstu teymi Gulleggsins ár hvert hljóta peningaverðlaun frá Landsbankanum. Verðlaunaféð hefur reynst mikilvæg lyftistöng fyrir sigurteymin og stutt við framgang hugmynda þeirra. Mörg farsæl fyrirtæki í íslensku atvinnulífi hafa byrjað sem hugmynd í Gullegginu, s.s. Taktikal, Pay Analytics, Heima app og Controlant.

Nú hefur KLAK samið við Landsbankann um að auka enn stuðning sinn og tvöfalda verðlaunaféð sem þrár stigahæstu hugmyndir Gulleggsins hljóta árið 2025. Þannig mun sigurhugmyndin fá tvær milljónir króna í verðlaun, hugmyndin sem endar í öðru sæti fær eina milljón króna og sú sem hafnar í þriðja sæti fær 500.000 krónur að launum. Það er því óhætt að segja að til mikils sé að vinna í Gullegginu 2025!

 „Við hjá Landsbankanum erum stolt af því að hafa stutt við Gulleggið frá fyrstu tíð. Keppnin hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir frumkvöðla til að þróa og efla hugmyndir sínar og við hlökkum til að sjá fleiri frábærar hugmyndir verða að veruleika,“ segir Sara Pálsdóttir framkvæmdastjóri Samskipta og menningar hjá Landsbankanum.

„Vegferð frumkvöðla frá hugmynd að öflugum rekstri er full af áskorunum. Stuðningur á fyrstu stigum þeirrar vegferðar getur skipt sköpum og margfaldað líkur á að hugmynd þroskist yfir í blómlegt fyrirtæki. Landsbankinn skilur þetta vel og hefur verið staðfastur bakhjarl Gulleggsins frá stofnun keppninnar fyrir 16 árum. Fyrir það erum við bankanum mjög þakklát,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK -Icelandic Startups: 

Gulleggið er frumkvöðlakeppni sem haldin er í upphafi hvers árs og er sérstaklega hugsuð fyrir nýsköpun á hugmyndastigi. Keppnin er opin öllum, jafnt hugmyndasmiðum og áhugafólki um nýsköpun sem vill láta að sér kveða. Gulleggið hefst í janúar með Hugmyndahraðhlaupi fyrir háskólanema og Masterclass-námskeiði í kjölfarið þar sem markmiðið er að þróa hugmynd og búa til kynningu á henni. Tíu teymi eru svo valin inn í lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í hátíðarsal Grósku þann 14. febrúar 2025. Opnað var fyrir umsóknir í dag.

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Affineva bar sigur úr býtum í Gullegginu 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum

Lokakeppni Gulleggsins 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar, klukkan 15:30 – 18:00. Þá stíga tíu metnaðarfull teymi á svið og kynna

Vegleg verðlaun Gulleggsins

Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með

Upptökur frá Masterclass

Það má ekki gleyma að njóta Masterclassins þó að þið séuð sennilega öll að klára umsóknir fyrir lokakeppnina Mikið sem þetta var gaman. Hér getið

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta