Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin hefur verið af KLAK – Icelandic Startups árlega síðan 2008, samtals 18 sinnum.
Keppt er um 2.000.000kr verðlaunafé fyrir fyrsta sætið!
Dagskrá Gulleggsins telur meðal annars:
Hugmyndahraðhlaup fyrir háskólanema í janúar
Masterclass, opin fyrir öll
10 teymi eru valin í Lokakeppni Gulleggsins
Gulleggið hefur verið stökkpallur fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki eins og Controlant, Meniga, PayAnalytics, Genki, Taktikal
Ertu háskólanemi með áhuga á nýsköpun?
Hugmyndahraðhlaup Gulleggsins & Landsbankans er nýsköpunarkeppni þar sem áhugasamt fólk kemur saman og skapar lausnir við raunverulegum vandamálum.
Þeir bakhjarlar Gulleggsins sem taka þátt í Hugmyndahraðhlaupinu eru:
Þessir aðilar kynna raunveruleg vandamál fyrir þátttakendur lausnamótsins að leysa.
Sigurvegarar Hugmyndahraðhlaups Gulleggsins & Landsbankans fá að launum 150.000 kr og tryggt sæti í Topp 10 hópnum í Lokakeppni Gulleggsins!
Ert þú skráð/ur í Gulleggið án hugmyndar?
Eða ertu kannski með frábæra hugmynd en vantar teymisfélaga?
Þá er þetta fullkominn vettvangur fyrir þig!
Hér koma þátttakendur í Gullegginu saman í fyrsta sinn og skála. Steiney Skúladóttir stýrir viðburðinum og aðstoðar þátttakendur við að mynda teymi út frá áhugasviði og hæfileikum.
Starfsfólk KLAK verður á staðnum til að veita upplýsingar um skráningu, Masterclass og svara öllum spurningum sem gætu vaknað!
Skráningu í Masterclass Gulleggsins lýkur á miðnætti sama kvöld, 29. janúar.
Masterclass Gulleggsins er ókeypis námskeið í nýsköpun og stofnun fyrirtækja – opið fyrir öll að kostnaðarlausu.
Hvort sem þú ert með hugmynd eða ekki, þá er Masterclass Gulleggsins fyrir öll þau sem hafa áhuga á nýsköpun eða að stofna fyrirtæki.
Reynsluboltar og neglur úr atvinnulífinu hjálpa þér að skilgreina hugmyndina þína og finna hvernig má skapa viðskiptatækifæri úr henni.
Markmiðið með Masterclass er að aðstoða þig við að útbúa 10 glæru kynningu og einnar mínútna myndband um hugmyndina þína, sem er akkúrat það sem þarf til að skila inn umsókn í Lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í febrúar.
Lokakeppni Gulleggsins 2026 – Stóra stundin er runnin upp! 🚀
Framúrskarandi frumkvöðlar og nýjar hugmyndir munu líta dagsins ljós í Lokakeppni Gulleggsins 2026!
Steiney Skúladóttir leiðir okkur í gegnum viðburðinn þar sem 10 frábær teymi kynna sínar nýsköpunarhugmyndir
Eftir keppni: Léttar veitingar, drykkir og skemmtileg samvera við gróðurvegginn
Bein útsending á visir.is

KLAK hvetur háskólanema sérstaklega til að taka þátt í Gullegginu.
Vísindaferð opin öllum háskólanemum. Drykkir í boði CCP.
