Gulleggið opið öllum í fyrsta sinn!

Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin hefur verið af Icelandic Startups síðan 2008. Gulleggið er stærsta keppni sinnar tegundar á landinu og eru árlega sendar inn yfir 200 viðskiptahugmyndir. Gulleggið hefur nú verið flutt af hausti og fram í janúar og samhliða því er verið að gera talsverðar breytingar á keppninni.

Frítt er að senda hugmynd í keppnina og er opið fyrir skráningu til miðnættis 13. janúar. Vinnusmiðjur fyrir alla þátttakendur fara svo fram helgina 15.-16. janúar. Fjöldi reyndra frumkvöðla og sérfræðinga munu taka þátt í vinnusmiðjunum og þar munu keppendur læra að móta hugmyndina og búa til svokallað „pitch deck“ eða stutta glærukynningu sem tekur á öllum þáttum hugmyndarinnar.

Hingað til hefur verið gerð krafa um að einn í teyminu hafi verið í háskólanámi á seinustu fimm árum eða sé í virku námi en í ár verður fallið frá því og er keppnin því í fyrsta sinn opin öllum.

Huld Magnúsdóttir, stjórnarformaður Icelandic Startups: “Þar sem Gulleggið hefur sýnt sig að vera mikilvægt fyrsta skref marga frumkvöðla var ákveðið að opna keppnina fyrir fleirum og gefa þannig sem flestum tækifæri á að nýta sér aðstoðina sem Gulleggið veitir.”

Áfram verður lögð rík áhersla á að þetta sé hugmyndakeppni og mega keppendur ekki hafa tekið inn fjármagn umfram 2 milljónir króna eða byrjað að hafa tekjur af hugmyndinni.

Í kjölfarið munu þátttakendur geta sent sína kynningu inn í keppnina og mun fjölskipuð dómnefnd velja 10 bestu kynningarnar. Þeim hópi verður síðan boðið aftur í kraftmikla vinnuhelgi sem fer fram helgina 29.-30. janúar og eftir hana eiga keppendur að vera tilbúnir til að standa uppi á sviði og selja sína hugmynd af öryggi. Lokakeppnin fer fram í Grósku þann 4. Febrúar og verður hún jafnframt í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi.

Ása María Þórhallsdóttir, verkefnastjóri Gulleggsins: “Við erum spennt fyrir þessum breytingum og bjartsýn á að þetta muni auka þátttöku og sýnileika keppninnar.”

Gulleggið er frábært fyrir frumkvöðla sem eru að stíga sín fyrstu skref og dæmi um fyrirtæki sem hafa tekið þátt í Gullegginu eru Controlant, Meniga, Pay Analytics, Heima og Solid Clouds. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, Landsbankinn veitir aðalverðlaunin sem eru 1 milljón króna og auk þess eru fjöldi auka verðlauna.

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Affineva bar sigur úr býtum í Gullegginu 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum

Lokakeppni Gulleggsins 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar, klukkan 15:30 – 18:00. Þá stíga tíu metnaðarfull teymi á svið og kynna

Vegleg verðlaun Gulleggsins

Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með

Upptökur frá Masterclass

Það má ekki gleyma að njóta Masterclassins þó að þið séuð sennilega öll að klára umsóknir fyrir lokakeppnina Mikið sem þetta var gaman. Hér getið

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta