Lokakeppni Gulleggins 2023 í Grósku 10. febrúar

Lokadagur og verðlaunaafhending Gulleggsins 2023 fer fram í hátíðarsal Grósku 10. febrúar kl. 16:00 á Stöð 2 Vísir og visir. is og á gulleggid.is.

Gulleggið er stærsta og elsta frumkvöðlakeppni landsins og fer hún nú fram í 16. skiptið. Tilgangurinn er að nýjar hugmyndir fái brautargengi og koma reyndir frumkvöðlar, fjárfestar og sérfræðingar að keppninni á hverju ári og veita leiðsögn og gefa endurgjöf. 

Met þátttaka var í ár er 374 einstaklingar skráðu sig til leiks í Masterclass Gulleggsins, að honum loknum skiluðu 101 teymi inn sinni kynningu og munu þau 10 efstu keppa um Gulleggið 2023 í hátíðarsal Grósku kl. 16:00 10. febrúar.

Gulleggið er í umsjón Klak – Icelandic Startups sem býr að áralangri reynslu af þjálfun og stuðningi við frumkvöðla á fyrstu stigum og hefur farið fram árlega síðan 2008.

Aðalbakhjarl Gulleggsins 2023 er Landsbankinn sem hefur tekið þátt í verkefninu frá upphafi en meðal annarra bakhjarla eru Controlant, Origo, HVIN, Reykjavíkurborg, Hugverkastofa, Advania, Marel, Eyrir Invest, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóðurinn, Crowberry capital, KPMG, Ölgerðin, Brunnur, Kvika eignastýring, Gróska, Frumtak ventures, Vörður auk Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands.

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Vegleg verðlaun Gulleggsins

Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með

Upptökur frá Masterclass

Hér getið þið horft á upptökurnar úr Mastarclass Gulleggsins síðan um helgina. Opið er fyrir umsóknir til miðnættis 5. febrúar n.k.

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta

Tengslamyndunarviðburður Gulleggsins

Ert þú skráð/ur í Gulleggið án hugmyndar?Eða ertu kannski með frábæra hugmynd en vantar teymisfélaga? Þá er þetta fullkominn vettvangur fyrir þig! Hér koma þátttakendur