Mörg hundruð kynna sér Gulleggið

Yfir 700 háskólanemar eru skráð í Vísindaferð Gulleggsins sem haldin er af KLAK – Icelandic Startups og fer fram í Grósku næstkomandi föstudag. Gulleggið er stærsta og elsta frumkvöðlakeppni landsins og fer hún nú fram í 16. skiptið en meðal fyrirtækja sem tekið hafa sín fyrstu skref í Gullegginu má nefna Controlant, Meniga, PayAnalytics og Solid Clouds. 

Aðalbakhjarl Gulleggsins er Landsbankinn sem hefur tekið þátt í verkefninu frá upphafi en meðal annara bakhjarla eru Reykjavíkurborg, HVIN, Marel, Origo, Advania, KPMG, Frumtak, Iðunn, Ölgerðin, Vörður, Hugverkastofa, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóður auk Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun ávarpa gesti í hátíðarsal Grósku. Fulltrúar bakhjarla Gulleggsins munu fara með erindi ásamt því að verkefnastjóri Gulleggsins, Ása María Þórhallsdóttir og fulltrúar KLAK kynna og fara yfir það sem er framundan í Gullegginu. Háskólanemendur, fulltrúar fyrirtækja, frumkvöðlar og sprotar koma saman til fagna og kynna sér starfsemi Gulleggsins, bakhjarla og samstarfsaðila en áhugaverðir og íburðarmiklir básar verða staðsettir á göngugötu Grósku sem setja svip sinn á vísindaferðina. 

Úlfur Úlfur með stjörnutvíeykinu Helga Sæmundi Guðmundssyni og Arnari Frey Frostasyni mun stíga á stokk í Grósku á föstudaginn. Það verður engu til sparað í ár og verður búist við allt að 700 manns mæti í ár. 

Gulleggið er unnið í samstarfi við Nýsköpunar- og frumkvöðlanefndir HÍ og HR. Árlega fær Gulleggið flotta einstaklinga til liðs við sig sem brenna fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi en Gulleggið er af stórum hluta stýrt af sjálfboðaliðum úr röðum háksólanema. 

Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðs hefur það hlutverk að efla nýsköpunar- og frumkvöðlastarf meðal nemenda Háskóla Íslands og vinnur nefndin náið með KLAK – Icelandic Startups. Það sem nefndin leggur mikla áherslu á og vinnur hörðum höndum að er að kynna fyrir nemendur Háskóla Íslands þau nýsköpunar- og frumkvöðlatækifæri sem standa þeim til boða, svo þau geta gert hugmyndir þeirra að veruleika og komum starfsemi KLAK á framfæri meðal háskólanema. Eitt af þeim stóru verkefnum sem nefndin kemur að og skipuleggur samhliða KLAK er vísindaferð Gulleggsins í Grósku, stærstu frumkvöðlakeppni landsins sem nú verður haldin á föstudaginn í Grósku.“ er haft eftir Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðsins. 

Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðið 2022-2023

Telma Rut Bjargardóttir

Jeremi Zyrek

Kayode Kehinde

Sylvie Boucher

Birgitta Nótt Guðmundsdóttir

Guðmundur Páll Atlason

Bjarki Leó Snorrason

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Affineva bar sigur úr býtum í Gullegginu 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum

Lokakeppni Gulleggsins 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar, klukkan 15:30 – 18:00. Þá stíga tíu metnaðarfull teymi á svið og kynna

Vegleg verðlaun Gulleggsins

Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með

Upptökur frá Masterclass

Það má ekki gleyma að njóta Masterclassins þó að þið séuð sennilega öll að klára umsóknir fyrir lokakeppnina Mikið sem þetta var gaman. Hér getið

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta