Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin er í upphafi hvers árs og haldin hefur verið af KLAK – Icelandic Startups síðan 2008. Keppnin er opin öllum, jafnt hugmyndasmiðum og áhugafólki um nýsköpun sem vill láta að sér kveða.
Gulleggið hefst í janúar með Hugmyndahraðhlaupi fyrir háskólanema og Masterclass-námskeiði þar sem markmiðið er að þróa hugmynd og búa til kynningu á henni sem gerir öllum kleift að taka næstu skref. 10 teymi eru svo valin inn í lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í hátíðarsal Grósku.
Lögð er rík áhersla á að þetta sé hugmyndakeppni og mega keppendur ekki hafa tekið inn fjármagn umfram 2 milljónir króna eða byrjað að hafa tekjur af hugmyndinni.
Gulleggið hefur verið stökkpallur fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki, sem dæmi má nefna Controlant, Meniga, PayAnalytics, Genki, Taktikal, og mörg fleiri!
Gulleggið er í umsjón KLAK – Icelandic Startups sem býr að áralangri reynslu af þjálfun og stuðningi við frumkvöðla á fyrstu stigum.
Að framkvæmd Gulleggsins koma hátt í 100 einstaklingar á hverju ári. Reyndir frumkvöðlar, fjárfestar og aðrir sérfræðingar sem hitta þátttakendur meðan á keppninni stendur og veita þeim leiðsögn og endurgjöf eða taka þátt í rýnihópi sem hefur það hlutverk að fara yfir viðskiptaáætlanir sem berast í keppnina. Þessi öflugi hópur fólks leggur fram tíma sinn í þágu verðmætasköpunar fyrir íslenskt samfélag.
Í lokakeppni Gulleggsins 2026 verða veitt vegleg peningaverðlaun til þriggja efstu teymanna:
1. sæti:
2.000.000 kr.
2. sæti:
1.000.000 kr.
3. sæti:
500.000 kr.
Alvotech og Fruman veita Frumukjarnann– sérstök líftækniverðlaun Gulleggsins 2026 – til mest framúrskarandi líftækniverkefnisins í keppninni.
– 300.000 kr. þróunarstyrk
Til að styðja fyrstu skref í þróunar- og nýsköpunarvinnu verkefnisins.
– Þriggja mánaða þróunar- og prófunartækifæri hjá Frumunni
Úrvalsteymið fær að:
– nýta aðgang að rannsóknarsetri Frumunnar,
– fá leiðsögn og handleiðslu reynslumikilla líftæknisérfræðinga,
– vinna eftir skýrri og markvissri þróunarleið sem mótuð er fyrir verkefnið.
Sérstakur gripur hannaður og smíðaður af Héðni, sem táknar nýsköpun, sköpunarkraft og tæknilega framsækni.
KPMG veitir aukaverðlaun til eins teymis í lokakeppni Gulleggsins, sem fulltrúi KPMG í dómnefnd velur.
Verðlaunin eru í formi ráðgjafar frá KPMG og gilda fyrir alla þá þjónustu sem félagið veitir. Hjá KPMG starfa sérfræðingar með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviðum eins og:
Þessi þekking nýtist nýsköpunarfélögum og frumkvöðlum sérstaklega vel, þar sem KPMG aðstoðar m.a. við áætlunargerð, fjárfestakynningar, stofnun félags, skattamál, styrkumsóknir, hluthafasamkomulög, samningagerð og fleira sem skiptir máli þegar hugmynd verður að rekstrarhæfu fyrirtæki.
Gróska | Heimar veita aukaverðlaun til eins teymis í lokakeppni Gulleggsins, sem fulltrúi Heima velur.
Verðlaunin felast í aðgangi að aðstöðu í Grósku, einum öflugasta suðupotti nýsköpunar á Íslandi, þar sem teymið fær tækifæri til að vinna að verkefninu sínu í hvetjandi umhverfi með öðrum frumkvöðlum og nýsköpunarfyrirtækjum.
Origo veitir aukaverðlaun í lokakeppni Gulleggsins í formi ráðgjafar frá sérfræðingum fyrirtækisins.
Þessi ráðgjöf getur skipt sköpum fyrir teymi sem eru að þróa stafrænar lausnir, hvort sem um ræðir tæknilega stefnumótun, vörþróun, notendaupplifun eða innleiðingu lausna á markað.
Gulleggið hefur frá upphafi keppninnar notið stuðnings nokkurra öflugustu fyrirtækja og stofnana landsins. Bakhjarlar og styrktaraðilar og aðrir samstarfsaðilar Gulleggsins leggja lóð sín á vogarskálarnar með fjárframlagi og sérfræðiþekkingu til að tryggja framgang keppninnar.
Gullegginu er af stórum hluta stýrt af sjálfboðaliðum úr röðum nemenda. Árlega skipar verkefnastjórn keppninnar um tólf nemendur á vegum nýsköpunar og frumkvöðlanefnda Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri. Þessi hópur er skipaður til eins árs í senn og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum.
Hlutverk þeirra í Gullegginu felst fyrst og fremst í því að sjá um skipulag og framkvæmd keppninnar undir leiðsögn verkefnastjóra KLAK – Icelandic Startups.