Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið nýr bakhjarl Gulleggsins

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið er nýr bakhjarl Gulleggsins en Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups undirrituðu samning til þriggja ára um þátttöku ráðuneytisins sem bakhjarls í Gullegginu.

„Til að ná markmiðum okkar í umhverfismálum verðum við að nýta okkar helstu auðlind, hugvitið. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leggur upp með að nýsköpun, rannsóknir og þróun leiki lykilhlutverk við umskiptin yfir í hringrásarhagkerfi og aðkoma ráðuneytisins að Gullegginu er liður í að styrkja frumkvöðla til góðra verka,“ er haft eftir Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. 

Gulleggið, sem haldið hefur verið af KLAK – Icelandic Startups í mörg ár, hefur fest sig í sessi sem ein vinsælasta frumkvöðlakeppni á Íslandi og veitt mörgum frumkvöðlum forskot og gott veganesti inn í nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Fjöldi fyrirtækja hefur farið í gegnum Gulleggið og má þar m.a. nefna Controlant, Taktikal, Meniga, PayAnalytics og Atmonia.

“Það er mjög ánægjulegt að fá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið inn sem nýjan bakhjarl Gulleggsins. Samstarfið mun án efa auka vitund um mikilvægi hringrásarhagkerfisins hjá keppendum í stærstu frumkvöðlakeppni Íslands. Aðkoma ráðuneytisins mun vera mikilvægur hvati fyrir hugmyndasmiði sem vilja sækja á ný mið og nýta tækifærin sem gefast í keppni eins og Gullegginu. Við hlökkum til samstarfsins.” Segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Upptökur frá Masterclass

Hér getið þið horft á upptökurnar úr Mastarclass Gulleggsins síðan um helgina. Opið er fyrir umsóknir til miðnættis 5. febrúar n.k.

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta

Tengslamyndunarviðburður Gulleggsins

Ert þú skráð/ur í Gulleggið án hugmyndar?Eða ertu kannski með frábæra hugmynd en vantar teymisfélaga? Þá er þetta fullkominn vettvangur fyrir þig! Hér koma þátttakendur