Yfir hundrað teymi fylgdust með Masterclass Gulleggsins

Frá vinstri - Ása, Sunna og Freyr í Masterclass Gulleggsins 2022

Masterclass frumkvöðlakeppninnar Gulleggið fór fram um liðna helgi. Yfir hundrað teymi fylgdust með fyrirlestrunum sem fóru fram í beinu streymi að þessu sinni vegna hertra sóttvarna.

Hægt er að horfa á fyrirlestrana hér.

„Þrjúhundruð manns voru skráðir í Masterclass Gulleggsins um síðustu helgi og þrátt fyrir hertar sóttvarnaraðgerðir deginum áður erum við afar ánægð með helgina og prógrammið í heild sinni. Við hjá Icelandic Startups erum að verða ansi vön því að þurfa að bregðast skjótt við og gera breytingar á fyrirkomulagi verkefna en helgin gekk vel og voru á bilinu 90 – 100 manns að fylgjast með okkur í beinu streymi alla helgina. Nú vonumst við bara til þess að sjá sem flesta þátttakendur skila inn kynningu á hugmynd sinni inn í sjálfa keppnina fyrir miðnætti 21. janúar,“ segir Ása María Þórhallsdóttir, verkefnastjóri Gulleggsins.

Haraldur Hugsson frumkvöðull flutti erindið Hvernig á að búa til gott pitch deck?
Haraldur Hugsson frumkvöðull flutti erindið Hvernig á að búa til gott pitch deck?

Mikil ánægja með fyrirlestrana

Anna C De Matos, Kristofer Henry Ásgeirsson og Sebastien Nouat standa að verkefni um Hringrásarsafn. Þau hafa áður sent frá sér verkefnið Reykjavik Tool Library og eru því engir nýgræðingar en segjast hafa lært margt af fyrirlestrum helgarinnar.

„Við vildum taka þátt því við þurfum æfingu í að pitcha verkefni til fjárfesta. Það vantar fræðsluvettvang fyrir þá sem eru komnir af stað með viðskiptahugmynd og þetta var frábær reynsla. Helgin var opin öllum og við erum mjög þakklát fyrir það. Við vonum að það verði fleiri Mastersclass helgar, við lærðum mikið og erum enn að læra,“ segja þau.

Haukur Guðjónsson hefur einnig áður tekið þátt en hafði mikið gagn af fyrirlestrum helgarinnar. „Ég er að taka þátt í Gullegginu í annað skipti en fyrsta skiptið var árið 2010 þar sem ég var með hugmyndina Búngaló sem ég rak alls í 7 ár og starfaði það fyrirtæki bæði í Kanada og Bandaríkjunum. Fyrir nokkrum árum síðan seldi ég það og er það ennþá starfandi í dag. Nú 12 árum síðar er ég að fara aftur af stað með fyrirtæki sem heitir OneContent og það er afskaplega gaman að fá tækifæri að fara aftur í gegnum Gulleggið og fá þann stuðning sem því fylgir,“ segir Haukur.

Meðal þeirra sem tóku þátt í Masterclass Gulleggsins um helgina eru þau Kristján E. Kristjánsson og Magdalena J.M. Tómasdóttir en þau standa á bak við Lífvörð sem er vél- og hugbúnaður sem mælir og skráir lífsmörk sjúklinga í rauntíma.

„Við vorum mjög ánægð með Masterclass Gulleggsins. Fengum innblástur og mikilvægar upplýsingar fyrir vegferð Lífvarðar,“ segja þau.

Elín Ósk tekur í sama streng. „Síðasta helgi var mjög fróðleg og þar var farið út í marga hluti sem ég gat virkilega lært af og tekið með mér inn í framtíð míns verkefnis. Ég fékk einnig margar hugmyndir um hvað ég get gert í framtíðinni til að betrumbæta hugmyndina,“ segir Elín Ósk en hennar teymi er að þróa símaforrit sem á að auðvelda heimilisbókhald til muna.

Þeir Andri Sigurðsson, Atli Þór Jóhannsson og Sindri Snær Magnússon nýttu sér fyrirlestrana um helgina en þeir mynda teymið Stöff. „Það er rafrænt deilihagkerfi sem bíður notendum upp á að samnýta stöff með leigu eða láni og þar með koma í veg fyrir sóun og styrkja hringrásarhagkerfið. Eins og Airbnb fyrir stöffið þitt,“ útskýra þeir.

Gulleggið frumkvöðlakeppnin er haldin af Icelandic Startups og hefur farið fram árlega síðan 2008. Tilgangurinn er að nýjar hugmyndir fái brautargengi og koma reyndir frumkvöðlar, fjárfestar og sérfræðingar að keppninni á hverju ári og veita leiðsögn og gefa endurgjöf.

Birt á visir.is í samstarfi við visir.is, 21. janúar 2022.

Myndir Haraldur Jónasson, Hari.

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Við kynnum vísindaferð Gulleggsins 18. október

KLAK – Icelandic Startups og Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd HR kynna vísindaferð Gulleggsins! Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni landsins, verður kynnt ásamt því að spennandi fyrirtæki verða á

Opið er fyrir umsóknir í Gulleggið 2025

Við hvetjum öll sem liggja á hugmynd og þau sem vilja taka þátt án hugmyndar að senda inn umsókn í Gulleggið 2025! Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni

Fyrstu verðlaun í Gullegginu hækka í 2.000.000 kr.

Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni landsins, hefur verið haldin af KLAK-Icelandic Startups frá árinu 2008 og frá upphafi hefur Landsbankinn verið aðalbakhjarl keppninnar. Nú hefur Landsbankinn ákveðið

Gulleggið í kynningarferð um landið

Á næstunni mun KLAK – Icelandic startups leggja hringveginn undir sig og halda í kynningarferð á starfsemi sinni með sérstakri áherslu á stærstu og elstu

Kynningarfundur um Gulleggið 2025 á Akureyri

Gulleggið sem er stærsta nýsköpunarkeppni landsins verður með kynningarfund sem haldin verður á Strikinu á Akureyri þann 2. október kl 17:00 Jenna Björk Guðmundsdóttir frá

Sea Growth hlaut Gulleggið 2024

Spennuþrungið andrúmsloftið leyndi sér ekki þegar úrslit Gulleggsins 2024 voru kunngerð. Tilkynnt var um þrjú efstu sætin og vinsælasta teymið að mati almennings.  Sea Growth