Þann 10. febrúar munu tíu teymi kynna hugmyndir sínar fyrir dómurum Gulleggsins í hátíðarsal Grósku. Gulleggið er stærsta og elsta frumkvöðlakeppni Íslands og þar hafa fjölmörg sprotafyrirtæki stigið sín fyrstu skref og má þar nefna Controlant, Meniga og SolidClouds.
Það er mikil spenna í loftinu en nú bíðum spennt eftir að fá að vita hvaða hugmynd hlýtur Gulleggið 2023 í hátíðarsal Grósku kl. 16:00 10. febrúar.
Aurora Interactive
Siðferðileg tölvuleikjagerð
Aurora Interactive sér fyrir tilfærslu leikjamarkaðarins í átt að öruggara umhverfi og staðsetur sig til að vera leiðandi í gerð sögudrifinna leikja á heimsvísu. Aurora er í þróunarfasa á sínu fyrsta hugverki sem verður sögudrifinn ævintýraleikur í léttum anda.
Dion Duff, Friðrik Snær Tómasson & Halldór Heiðberg
Bambaló Barnapössun
Snjallforrit sem tengir fjölskyldur við barnapíur
Bambaló er lausn á vandamáli margra foreldra og forráðamanna á Íslandi sem þurfa að reiða sig á ættmenni eða vinafólk til að komast í burtu frá heimilinu í nokkra tíma.
Snjallforritið mun tengja saman foreldra og barnapíur á einfaldann, fljótlegan og öruggan hátt.
Aníta Ísey & Rebekka Levin
Better Sex – 1. Sætið
Lykilinn að góðu kynlífi er samtalið
The key to great sex is communication
Better Sex er streymisveita fyrir fullorðna með faglegum og skemmtilegum fróðleik um kynlíf. Þú getur fræðst um allt mögulegt í tengslum við kynlíf og sambönd, á einum stað, með fremstu sérfræðingum í heimi, hvar sem er, hvenær sem er.
Sigga Dögg & Sævar Eyjólfsson
EZZE
Samfélagsmiðill fyrir notaðar vörur
Fyrirtækið okkar heitir EZZE og viljum við gera sölur og kaup á notuðum vörum jafn auðveld og skemmtileg og að skrolla á instagram!
Með appi til að kaupa, selja, bjóða í og gefa vörur en einnig followa, likea og spjalla við aðra allt á einum stað, þannig líka fara vörur beint á heimasíðu fólksins sem hefur áhuga á þeim.
Við ætlum einnig að auðvelda þér skiptin á vörunum með að bjóða upp á valkosti sem henta þér eins og að fá sent heim, sækja eða ná í næsta póstbox. Svo þú þarft ekki einu sinni að hitta seljandann!
Þóra Ólafsdóttir & Donna Cruz
PellisCol – vinsælasta teymið
PellisCol ætlar að þróa hágæða náttúrulegar Spa húðvörur úr hreinu íslensku kollageni
PellisCol ætlar að þróa og setja á markað Spa húðvörur byggðar á íslensku kollageni og færa þannig kollagenið nær húðinni. Vörur PellisCol munu innihalda hágæða íslenskt kollagen sem unnið er úr þorskroði á einstakan og sjálfbæran hátt.
Íris Björk Marteinsdóttir & Ívar Örn Marteinsson
Sápulestin
Endurunninn fjársjóður
Sápulestin lítur á steikingarolíuna sem stíflar fráveitukerfin og mengar sjávarlífið sem glötuð verðmæti. Sápulestin bjargar þessum fjársjóði og nýtir í kaldpressaðar sápur.
Alda Leifsdóttir & Elísabet Halldórsdóttir
Snux
Það er hægt að hætta
Snux er einföld lausn til að styðja við atferlisbreytingu þegar einstaklingar hafa ákveðið að hætta notkun nikótínpúða. Púðarnir eru framleiddir úr öruggu læknasílíkoni, eru hannaðir útfrá lögun klassískra nikotínpúða og eru endurnýtanlegir.
Harpa Hjartardóttir
SoFo
Valdeflir unga fjárfesta
Stærsta hindrun í að gerast fjárfestir er að skilja markaðinn.
Ungt fólk er sífellt meira að leitast í samfélagsmiðla til að læra á markaðinn en þar er erfitt að vita hverjum er treystandi.
SoFo eða Social PortFolio er gagnadrifinn samfélagsmiðill fyrir alla fjárfesta til að deila skoðunum, læra á markaðinn, og rísa á toppinn.
Fjölnir Þrastarson, Þórarinn Sigurvin Gunnarsson &
Friðrik Örn Gunnarsson
Soultech – 2. Sætið
Sálfræðimeðferðin innan handar
Við erum að þróa stafrænt umhverfi sem auðveldar alla sálfræðimeðferðarvinnu. Við styðjum við sálfræðinga í starfi með verkfæri sem heldur utan um meðferðirnar sem þeir veita, auðveldar yfirsýn og eftirfylgni. Við gerum skjólstæðingum og almenningi kleift að fara í gegnum sálfræðimeðferðir í hugbúnaðnum. Þannig getur almenningur sótt sér sjálfshjálpar sálfræðimeðferðir & skjólstæðingar hafa meðferðina á sér þegar þau þurfa mest á henni að halda.
Davíð Haraldsson, Stefán Ólafsson, Pétur Örn Jónsson, Bryndís Jóhannsdóttir & Hrefna Líf Ólafsdóttir
StitchHero – 3. Sætið
The creative knitter’s companion for knitwear design
StitchHero kollvarpar því hvernig skapandi prjónarar prjóna með því að valdefla þau til þess að hanna og skapa flíkur eftir eigin höfði – án þess tíma og orku sem fylgir því að skrifa prjónauppskriftir.
StitchHero er öflugur hönnunarhugbúnaðar með þæginlegu viðmóti sem umbreytir hönnun í nýtanlega prjónauppskrift.
StitchHero hjálpar prjónurum að láta hugmyndir sínar verða að veruleika með víðfeðmu hönnunarsafni, allt frá sniði, litamynstri og mismunandi lykkjumynstri fyrir margar tegundir flíka.
Þórey Rúnarsdóttir & Marta Schluneger