Gulleggið í kynningarferð um landið

Á næstunni mun KLAK – Icelandic startups leggja hringveginn undir sig og halda í kynningarferð á starfsemi sinni með sérstakri áherslu á stærstu og elstu frumkvöðlakeppni landsins, Gulleggið og viðskiptahraðalinn Startup Tourism sem hefur verið endurvakinn eftir 5 ára dvala. Verkefnastjórar KLAK, Kolfinna Kristínardóttir, Jenna Björk Guðmundsdóttir og Ísey Dísa Hávarsdóttir munu halda kynningarviðburði víða um land.

Við hvetjum öll áhugasöm til þess að mæta á viðburð í sinni heimabyggð, njóta léttra veitinga og kynnast kynnast tækifærum í stuðningsumhverfi nýsköpunar. 

Gulleggið er stærsta frumkvöðlakeppni landsins og hefur hún verið haldin af KLAK – Icelandic Startups síðan árið 2008. Keppnin er sérstaklega hugsuð fyrir nýsköpun á hugmyndastigi. Gulleggið er opið öllum, það er einnig opið þeim sem ekki eru með hugmynd.

Hugmyndahraðhlaup Háskólanna, nýr dagskráliður Gulleggsins, verður haldið helgina 4.-5. janúar. Það er viðburður opinn öllum háskólanemum landsins og er tækifæri til þess að finna sér teymi og þóa með því nýsköpunarhugmynd innan öflugs stuðningaumhverfis – sem má svo senda inn í Masterclass Gulleggsins. Masterclass er opið námskeið í nýsköpun og frumkvöðlafræðum. Verður námskeiðið í beinu streymi á Akureyri og fulltrúi frá KLAK á staðnum til aðstoðar, t.d. við uppsetningu á kynningu hugmyndar sem hægt er að senda í keppnina.

Startup Tourism er fimm vikna viðskiptahraðall sem hefur það markmið að hvetja til nýsköpunar og tæknivæðingar í ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring. Sérstök áhersla er lögð á að auðvelda aðilum af öllu landinu að taka þátt og kynningarferðin er einn liður í því. Hraðallinn samanstendur af fimm tveggja daga lotum sem ýmist fara fram á netinu eða í Grósku í Reykjavík en flug og gisting verða niðurgreidd fyrir þau teymi sem koma af landsbyggðinni. 

Tilgangur ferðarinnar er að hvetja til nýsköpunar, fræða og upplýsa um hvað er í boði fyrir þau sem hafa legið á hugmyndum sínum hvort sem það er innan ferðaþjónustunnar eða í öðrum greinum.

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Affineva bar sigur úr býtum í Gullegginu 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum

Lokakeppni Gulleggsins 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar, klukkan 15:30 – 18:00. Þá stíga tíu metnaðarfull teymi á svið og kynna

Vegleg verðlaun Gulleggsins

Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með

Upptökur frá Masterclass

Það má ekki gleyma að njóta Masterclassins þó að þið séuð sennilega öll að klára umsóknir fyrir lokakeppnina Mikið sem þetta var gaman. Hér getið

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta