Samskiptastjóri Háskólans á Akureyri vill Gulleggið norður

KLAK – Icelandic Startups í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Stúdentafélag háskólans á Akureyri blésu í stóru lúðrana í Menningarhúsinu Hofi á föstudaginn þegar vísindaferð Gulleggsins á Norðurlandi var keyrð í gang. Magnús Daði Eyjólfsson, verkefnastjóri Gulleggsins, ásamt Jennu Björk Guðmundsdóttur verkefnastjóra hjá KLAK opnuðu vísindaferðina en hún er haldin í annað skiptið á Akureyri. Gulleggið er stærsta frumkvöðlakeppni Íslands og eru viðburðir haldnir í samstarfi við háskólana í aðdraganda keppninnar þar sem markmiðið er að kynna keppnina fyrir háskólanemum.

Magnús Daði Eyjólfsson fór yfir helstu lykilatriði hvað varðar þátttöku í stærstu frumkvöðlakeppni Íslands við góðar undirtektir úr salnum og í kjölfarið stigu fulltrúar Háskólans á Akureyri á svið, Silja Jóhannesar Ástudóttir, samskiptastjóri Háskólans á Akureyri og Æsa Katrín Sigmundsdóttir, formaður Nýsköpunar- og frumkvöðlanefndar hjá SHA. Silja sem er ekki ókunn nýsköpunarumhverfinu en starfaði  áður hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, talaði fyrir góðu gengi allra frumkvöðla hvaðeina af vestur-, norður – og austurlandi og hvatti öll í salnum að vinna að því markmiði að fá Gulleggið 2024 norður.

Það var dúndur stuð á tónlistarstjörnunni Húgó, nýliða ársins 2022 á Hlustendaverðlaununum, en hann hristi rækilega upp í lýðnum sem samankominn var í Hömrum í Hofi en þar mætti hann með fjólubláa villikattar hjálminn sinn fræga sem hefur vakið mikla athygli.

Meðal bak­hjarla sem voru með kynn­ing­ar­bása í Hofi voru Há­skólinn á Akureyri, Landsbankinn, KPMG, Hugverkastofa, Bifröst og Héðinn hf. en Coca Cola Europacific Partners á Íslandi sem einnig er bakhjarlar bauð upp á drykki. 

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Affineva bar sigur úr býtum í Gullegginu 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum

Lokakeppni Gulleggsins 2026

Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar, klukkan 15:30 – 18:00. Þá stíga tíu metnaðarfull teymi á svið og kynna

Vegleg verðlaun Gulleggsins

Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með

Upptökur frá Masterclass

Það má ekki gleyma að njóta Masterclassins þó að þið séuð sennilega öll að klára umsóknir fyrir lokakeppnina Mikið sem þetta var gaman. Hér getið

Frábær Vísindaferð

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta